Áhugavert:
Stærðfræðiskýringar Skólavefsins
Hér getið þið nálgast skýringabanka í stærðfræði þar sem farið er yfir öll helstu atriði stærðfræðinnar úr efstu bekkjum grunnskólans og upp í fyrstu áfanga framhaldsskólans. Eru skýringarnar settar fram í stuttum myndböndum þar sem hönd sýnir hvernig á að reikna samkvæmt viðkomandi aðferð. Yfirflokkarnir í þessum lið eru:
1. Tölur
2. Hlutföll og prósentur
3. Bókstafareikningur
4. Jöfnur og jöfnuhneppi
5. Rúmfræði
6. Tölfræði og líkindi
7. Mengi
8. Annars stigs jöfnur
Segja má að hér sé um skemmtilega nýjung að ræða sem kennarar og nemendur geta nýtt sér jöfnum höndum og felur það í sér að hægt er að skoða skýringarnar aftur og aftur þangað til fullur skilningur hefur náðst. Samhliða skýringunum er svo boðið upp á léttar æfingar til að vinna nánar með útskýringarnar og festa skilninginn inni. Efnið er unnið af stærðfræðingunum Önnu Hrund Másdóttur og Grétari Amazeen. |
Áhugavert:
Stærðfræðikennarinn

*Ath. virkar best í Firefox og Google Chrome
Stærðfræðikennarinn er gríðarlega metnaðarfullt verk sem við á framhaldsskoli.is erum að byrja að kynna þessa stundina og munum bjóða upp á í hentugum skömmtum á næstu misserum. Efnið er aðkeypt, en að því standa 11 breskir háskólar og má segja að það sé einstakt í sinni röð. Það er byggt upp á svipaðan hátt og Stærðfræðiskýringar Skólavefsins nema hvað hér er um mun meira efni að ræða, sem hreinlega smellpassar fyrir framhaldsskólana alveg frá fyrstu áföngum upp í efstu áfanga. Vegna umfangs höfum við ekki farið út í að þýða efnið, sem er á ensku, nema efnisyfirlitið og grunnlýsingar á hverju myndbandi. Þar sem efnið byggist á mjög nákvæmri sýnikennslu á myndbandi (líkt og íslensku stærðfræðiskýringarnar) ætti það ekki að koma að sök, einkum þar sem efnisyfirlitið er þýtt og nemendur eiga því auðveldara með að finna það sem þeir leita að. Þetta getur nýst sem ítarefni fyrir lengra komna, kennsluefni í efri áföngum og sem stuðningsefni fyrir kennara, enda alltaf áhugavert að sjá hvernig aðrir vinna með hugtökin.
|