Áhugavert:
Heimastjórnin
Heimastjórnin er metnaðarfullt námsefni þar sem unnið er með sjálfstæðisbaráttuna fram að því þegar Íslendingar fengu heimastjórn og út það tímabil líka. Í grunninn skiptist efnið í fimm kafla: 1. Saga heimastjórnarinnar. 2. Annálar. 3. Sögufrægir Íslendingar. 4. Viðtöl og 5. Blaðagreinar. Þeir kaflar greinast svo niður í undirkafla. Verkið er allt mjög skemmtilega framsett og þægilegt í allri notkun. Hægt er að nálgast suma kaflana sérútbúna til útprentunar.
|
Áhugavert:
Fólk í sögunni

Við viljum benda sérstaklega benda á námsefni sem ber yfirheitið Sögufrægir Íslendingar, en þar er hægt að sækja upplýsingar um valda Íslendinga sem getið hafa sér nafns í sögunni og eru sífellt nýir einstaklingar að bætast í hópinn. Hægt er að sækja þetta efni í vefútgáfum og einnig í sérútbúnum útprentanlegum útgáfum með góðum verkefnum.
Rétt er að taka það fram að sumar vefútgáfurnar er hægt að hlusta á upplesnar. |