Áhugavert:
Hvalir
Enn sem komið er bjóðum við upp á lítið efni í náttúrufræði, en skörtum þó því sem til er. Er þar helst að nefna ítarlegan vef um hvali, sem einnig er hægt að nálgast til útprentunar með góðum verkefnum. Efnið er unnið í samvinnu við Hafrannsóknarstofu Íslands, og á Droplaug Ólafsdóttir stóran þátt í því. Efnið skiptist annars vegar í almenna umfjöllun um hvali og hins vegar í umfjöllun um einstakar hvalategundir. Í heildina telur almenni hlutinn 27 bls. í útprentun með góðum verkefnum. Rétt er að taka fram að efnið var að hluta til styrkt af NAMMCO og kunnum við þeim góðar þakkir fyrir, sem og Hafrannsóknarstofnum og Droplaugu Ólafsdóttur.
|
Áhugavert:
Eðlisfræði

Eðlisfræðin er enn sem komið er skammt á veg komin hjá okkur, en við hyggjumst byggja upp góðan grunn skýringa á næstu misserum. Við erum komin með skýringar á fjórum hugtökum, en það eru: Rúmmál, eðlismassi, lotukerfið og hamskipti. Svo minnum við á gamla hugtakið „mjór er mikils vísir“.
|