Áhugavert:
Heimurinn í hnotskurn
Landafræðisíðan okkar hér á framhaldsskoli.is er enn heldur rýr, en við stefnum á að bæta úr því nokkuð hratt. Þó er hér að finna nokkra eftirtektarverða liði eins og Heimurinn í hnotskurn. Þar getið þið nálgast upplýsingar um valin lönd, en upplýsingarnar fela í sér kort, stutt söguágrip, auk helstu tölulegu upplýsinga. Er efnið unnið af sérfræðingum á þessu sviði, en þau lönd sem nú þegar eru komin á vefinn eru: Afganistan, Erítrea, Eþíópía, Fílabeinsströndin, Írak, Kasmír, Líbería, Pakistan og Saudí Arabía. Fleiri lönd bætast við innan tíðar.
|
Áhugavert:
Grímseyjarlýsing Jóns Norðmanns

Grímseyjarlýsing séra Jóns Norðmanns frá árinu 1846-1850 er stórmerk heimild um hugsunarhátt Íslendinga um miðja 19. öld. Má segja að lýsingin sé einstök í sinni röð. Það sem er kannski merkilegast við lýsinguna er hvað höfundur gerir sér far um að kynnast mörgu í lífi eyjarskeggja. Og þó svo að höfundur haldi sig að mestu leyti við kunnar staðreyndir síns tíma, gefur hann okkur skemmtilega innsýn í hugsanagang fólks og hjátrú, sem var raunverulegur partur af lífi þess.
|