Áhugavert:
Sýnisbók íslenskra bókmennta
Sýnisbók íslenskra bókmennta er nýr efnisliður þar sem hugmyndin er að setja inn verk vel flestra íslenskra höfunda sem eitthvað hefur kveðið að. Ætlum við okkur nokkurn tíma í þetta, en nú þegar eru komnir inn 50 höfundar og sífellt bætast nýir við. Flestir textarnir eru og verða útbúnir með góðum verkefnum og eins og alltaf verður hægt að sækja efnið í vönduðum vefútgáfum og sérútbúnum prentútgáfum. Stutt æviágrip fylgir hverjum höfundi. Er hér um að ræða einstakt verk sem ætti að geta nýst kennurum og nemendum í flestum áföngum og gefur kost á fjölbreyttara námi. |
Áhugavert:
Íslendingasögur og þættir

Á framhaldsskoli.is er hægt að nálgast flestar Íslendingasögurnar í skemmtilegum vefútgáfum þar sem einnig er boðið upp á alls kyns ítarefni, s. s. upplestur, viðtöl við fræðimenn (Egils saga), kort, skýringar og annað. Þá er einnig hægt að sækja sérútbúnar prentútgáfur af sögunum, stök verkefni og verkefnahefti. Athygli skal vakin á því að verkefni fylgja öllum sögunum. Við munum svo jöfnum höndum halda áfram að tína inn þær sögur sem eftir eru. Einnig bjóðum við upp á nokkra Íslendingaþætti og munum reglulega bæta fleiri þáttum við. |
Áhugavert:
Málfræðiskýringar og æfingar
Í íslenskum málfræðigrunni bjóðum við upp á ítarlegar og vandaðar málfræðiskýringarnar á þægilegu uppflettiformi. Sumar skýringanna er hægt að skoða á myndbandsformi og fylgja þeim gagnvirkar æfingar og einnig verður hægt að nálgast þær allar í prentútgáfu.
Nú þegar eru komnar skýringar við fallorðin og bætast sagnorðin við innan skamms og síðan smáorðin. Þetta er mjög ítarlegt og skemmtilega fram sett verk í íslenskri málfræði. |
Áhugavert:
Stafsetningaræfingar og skýringar

Í stafsetningu bjóðum við eins og í málfræðinni upp á vandaðar og aðgengilegar skýringar í formi uppflettirits. Fjölmargar gagnvirkar æfingar auðvelda lærdóm í stafsetningunni sem er hér kennd á auðveldan og þægilegan hátt.
Í stafsetningu er boðið upp á 30 síðna regluhefti auk 40 æfinga. Í vefútgáfunni fylgir upplestur og gagnvirkar æfingar og allt efnið verður útprentanlegt.
|